Upplýsingar

  • Dagsetning: 08/11/2023 – 10/11/2023
  • Tími: 09:00 – 16:00
  • Staður: Staðnám – Hótel Laugarbakki – Miðfirði
  • Verð:

Lýsing

Megináhersla er lögð á helstu hagfræðihugtök í daglegu lífi og í kjarasamningagerð, s.s. kaupmátt launa, mun á hlutfallslegri hækkun eða krónutöluhækkun.

Megináhersla er lögð á lög um vinnurétt og hvernig þau styðja kjarasamninga og hvernig íslenskur vinnumarkaður er upp byggður.

Lögð er áhersla á rétt launamanna t.d. til fæðingarorlofs, atvinnuleysistrygginga og ýmis þau réttindi í lögum og reglugerðum sem íslenskur vinnumarkaður byggir á.

Nemendur kynnast tryggingum sem við höfum í gegnum kjarasamninga, almannatryggingakerfið og lífeyrissjóðakerfið. Farið verður í réttindaávinnslu og samspil þessara kerfa. 

Ábyrgðaraðili

Sigurlaug Gröndal