Upplýsingar
- Dagsetning: 10/12/2024 – 10/12/2024
- Tími: 09:00 – 12:00
- Staður: Kennsla fer fram á vefnum í gegnum Zoom
- Verð: 8900 ISK
Lýsing
Megináhersla er lögð á tilurð og uppbyggingu almannatryggingakerfisins og lífeyrissjóðakerfisins.
Farið er í hugmyndafræði íslenska lífeyrissjóðakerfisins, styrk þess og hvernig það byggir á samkomulagi verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda.
Fjallað er um skylduaðild, tryggingavernd og samspil lífeyrissjóðanna og almannatryggingakerfisins.
Einnig er skoðuð réttindaávinnsla og taka lífeyris.
Nemendur fá sendan hlekk í tölvupósti inn á Zoom deginum áður en námskeiðið hefst.