Upplýsingar

  • Dagsetning: 26/03/2026 – 27/03/2026
  • Tími: 09:00 – 16:00
  • Staður: Fundarsal Framsýnar, Garðarsbraut 26, Húsavík
  • Verð:

Lýsing

Megináhersla er lögð á hlutverk og starf trúnaðarmannsins samkvæmt gildandi lögum og kjarasamningum. Hvaða þekkingu þarf trúnaðarmaður að hafa og hvar getur hann leitað sér upplýsinga um túlkanir á gildandi kjarasamningum og vinnurétti. Einnig hvernig trúnaðarmaður á að meðhöndla umkvartanir samstarfsmanna sinna og vinna úr þeim.

Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum.

Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra. Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað og hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda.

Farið er í starfsemi Lífeyrissjóðsins Stapa og réttindi sjóðfélaga.

Farið er yfir starfsemi stéttarfélaganna og kjaramál.

Ábyrgðaraðili

Sigurlaug Gröndal