Upplýsingar
- Dagsetning: 14/11/2023 – 16/11/2023
- Tími: 09:00 – 13:00
- Staður: Guðrúnartún 1
- Verð: 31000 ISK
Lýsing
Fjallað verður um sögu kjarasamningsréttarins, sérstöðu kjarasamninga og gildi þeirra og tilhögun atkvæðagreiðslna. Farið verður yfir muninn á milli aðalkjarasamninga, fyrirtækjasamninga, sérkjarasamninga, vinnustaðasamninga og ráðningarsamninga. Jafnframt verður fjallað um heimildir og umboð samninganefnda.
Síðan verður farið yfir friðarskyldu, hvað hún er, hvers vegna er hún til og hverja bindur hún. Þá verður fjallað um kjarasamninga við atvinnurekendur utan heildarsamtaka, mörk ólöglegra og löglegra aðgerða sem heyra undir friðarskyldu.
Í lokin verður fjallað um, hvernig standa beri að undirbúningi atkvæðagreiðslu um verkföll, framkvæmd atkvæðagreiðslu og nauðsynleg skilyrði fyrir boðun verkfalla og hlutverk ríkissáttasemjara. Farið verður yfir meginreglur sem hafa mótast um framkvæmd verkfalla (allsherjarverkföll, takmörkuð verkföll, skæru verkföll, hluta verkföll), verkfallsvörslu, hverjum heimilt sé að vinna í verkfalli og frestun og aflýsingu verkfalla. Þá verður fjallað um ábyrgð stéttarfélaga á ólögmætum samningsrofum.
Leiðbeinendur eru lögfræðingar ASÍ.
Athugið: Námskeiðið er tvö skipti, þ.e. þriðjudaginn 14. nóv. og fimmtudaginn 16. nóv. kl. 9:00 – 13:00.
Námskeiðið er í fjarkennslu í Zoom. Skráningu lýkur 7. nóvember kl. 12.