Upplýsingar
- Dagsetning: 16/10/2023 – 17/10/2023
- Tími: 09:00 – 15:30
- Staður: Fundarsal Hlífar að Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði
- Verð:
Lýsing
Nemendur læra reiknitölur helstu launaliða og kynnast grunnuppbyggingu launaseðla og launaútreikninga svo og staðgreiðslu skatta og mikilvægi þess að varðveita launaseðla.
Nemendur leysa verkefni sem felst í að reikna út launagreiðslur frá grunni.
Nemendur kynnast tryggingum sem við höfum í gegnum kjarasamninga, almannatryggingakerfið og lífeyrissjóðakerfið.
Farið verður í réttindaávinnslu og samspil þessara kerfa.