Upplýsingar

  • Dagsetning: 01/10/2023 – 31/10/2023
  • Tími: 00:00 – 23:30
  • Staður: Rafræn fræðsla (upptökur)
  • Verð: 14500 ISK

Lýsing

Fjallað er um þjóðfélag, samfélag og ýmis hugtök tengd því. Fjallað er um mikilvægi þess að vera þátttakandi í samfélagi sem byggir á lýðræði og þátttöku almennings. Farið er í skipulag stjórnkerfis á Íslandi.

Einnig er farið í uppbyggingu og hlutverk stéttarfélaga og hagsmunasamtaka launafólks og atvinnurekenda. Uppbygging vinnumarkaðarins, hverjir eru viðsemjendur, samningaviðræður og gildi kjarasamninga.

Í lokin er farið yfir tölulegar upplýsingar tengdum vinnumarkaðnum, þróun launa, framtíðarspár starfa og mannafjöldaspár.

Markmið fræðslunnar er að þátttakendur:

  • Kynnist hugtökum sem tengjast lýðræði og lýðræðislegum rétti einstaklinga, vinnumarkaði, réttindum og skyldum launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði, stéttarfélögum, gildi kjarasamninga og ráðningarsamningum.
  • Geri sér grein fyrir áhrifum og ábyrgð sem einstaklingar hafa í lýðræðislegu þjóðfélagi og mikilvægi þátttöku í ákvarðanatöku.
  • Verði meðvitaðir um hvernig íslenskur vinnumarkaður er uppbyggður, hvernig stéttarfélög og verkalýðshreyfingin starfar og hvernig kjarasamningar eru uppbyggðir.

Námskeiðið er rafrænt þar sem nemendur horfa á upptökur af fyrirlestri og að þeim loknum þurfa nemendur að leysa verkefni í formi spurninga úr efni fyrirlestrarins. Fyrirlestur og námsefni við skráningu fer inn á innri vef nemenda.

  • Skráningum lýkur 30. september kl. 18. Nemendur hafa til 31. október kl. 23:00 2023 til að ljúka námskeiðinu.

Ábyrgðaraðili

Guðrún Edda Baldursdóttir