Upplýsingar
- Dagsetning: 10/05/2023 – 13/05/2023
- Tími: 09:00 – 12:00
- Staður: Guðrúnartún 1 (Húsnæði ASÍ – 1. hæð, fundarherbergi Bárubúð)
- Verð: 215000 ISK
Lýsing
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að undirbúa stjórnarmenn í lífeyrissjóðum undir þá þætti í starfsemi lífeyrissjóðanna sem FME hefur tekið mið af í mati sínu.
Farið er yfir eftirfarandi þætti; Hlutverk stjórnarmanna og starfsemi lífeyrissjóða; Sjálfstæði, dómgreind og viðhorf; Reikningsskil og endurskoðun lífeyrissjóða; Fjárfestingarstefnu, áhættumat, hlutverk og helstu verkefni stjórnarmanna í lífeyrissjóðum.
Fjallað er um hlutverk stjórnarmanna og helstu þætti sem þeir þurfa að hafa þekkingu á með setu í stjórnum lífeyrissjóða.
Námskeiðið er 33 kest.
ATHUGIÐ: Námskeiðið er eingöngu kennt í staðnámi.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 4. maí.
Dagskrá
Miðvikudagur 10. maí kl. 9:00-16:00
Hlutverk stjórnarmanna og starfsemi lífeyrissjóða (9:00-12:00)
· Þórey S. Þórðardóttir, hrl., framkvæmdastjóri LL
Sjálfstæði, dómgreind og viðhorf (12:30-16:00)
· Kristján Geir Pétursson, hdl., lögfræðingur hjá Birtu
Fimmtudagur 11. maí kl. 9:00 – 16:00
Fjárfestingarstefna, áhættumat, hlutverk og helstu verkefni stjórnarmanna í lífeyrissjóðum.
· Tómas N. Möller lögfræðingur hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna
Föstudagur 12. maí kl. 9:00 – 16:00 og laugardagur 13. maí kl. 9:00 – 12:00
Föstudagur
Reikningsskil og endurskoðun lífeyrissjóða
· Vignir Rafn Gíslason, löggildur endurskoðandi og eigandi hjá PWC
· Jón Sigurðsson, löggildur endurskoðandi og eigandi hjá PWC
Laugardagur
Reikningsskil og endurskoðun lífeyrissjóða
· Vignir Rafn Gíslason, löggildur endurskoðandi og eigandi hjá PWC