Þekking í þágu launafólks
NÁMSKEIÐ FRAMUNDAN
Öryggi á vinnustað – starfsfólk í afgreiðslu-og þjónustu
Námskeiðið er ætlað starfsmönnum í afgreiðslu og þjónustustörfum.
Oft eru starfsmenn í afgreiðslu og þjónustustörfum berskjaldaðir fyrir viðskiptavinum sem að hækka í spennu.
Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig má draga úr spennu viðskiptavina í samtölum og komast hjá krefjandi aðstæðum.
Leiðbeinandi er Magnús Ingvi Ingvarsson framkvæmdastjóri hjá Þitt öryggi ehf sem hefur komið að uppsetningu og fræðslu á öryggi starfsfólks á vinnustöðum síðan 2017.
Námskeiðið fer fram í fjarnámi á vefnum í gegnum Zoom.
Nemendur fá sendan hlekk inn á Zoom deginum áður en námskeiðið hefst.
Skráningu lýkur 21. apríl kl. 12:00
Samningatækni – fjarnám
Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá trúnaðarmannanámsins.
Lögð er áhersla á eðli og markmið samninga.
Fjallað er um hvernig við getum metið stöðu okkar til að ná samkomulagi á vinnustað við stjórnendur og hvernig við bregðumst við deilum og vinnum okkur niður á samkomulag.
Skráningu lýkur 22. apríl kl. 12:00
Handbók trúnaðarmannsins
HLUTVERK, RÉTTINDI OG SKYLDUR TRÚNAÐARMANNA
EINELTI Á VINNUSTAÐ
VIÐGENGST EINELTI Á ÞÍNUM VINNUSTAÐ? ÞEKKIR ÞÚ EINKENNIN?
FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR
Hæfnirammi um íslenska menntun
Hæfnirammi um íslenska menntun Hæfnramma um íslenska menntun er ætlað að endurspegla stigvaxandi...
Orðakista ASÍ – orðasafn fyrir íslenskan vinnumarkað
Orðakista ASÍ Það gleður okkur að segja frá því að ASÍ hefur gefið út nýtt smáforrit, Orðakistu...
Nýr námsvefur skólans kynntur á menntadegi BSRB (upptaka)
Menntadagur BSRB var haldinn í gær undir yfirskriftinni Til móts við ný tækfæri. Dagskráin var...
FÉLAGSMÁLASKÓLINN
Félagsmálaskóli alþýðu er starfræktur af Alþýðusambandi Íslands og BSRB. MFA, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, fer með rekstur og málefni skólans. Hlutverk hans er að auka þekkingu talsmanna stéttarfélaga og efla þá í starfi til þess að þeir séu betur í stakk búnir að vinna að bættum lífskjörum launafólks.