Upplýsingar

  • Dagsetning: 31/10/2024 – 01/11/2024
  • Tími: 09:00 – 14:00
  • Staður: Staðnám – Hótel Laugarbakki, Miðfirði
  • Verð:

Lýsing

Megináhersla er lögð á eðli og markmið samninga, grunnatriði samningatækni og hvernig hún er notuð í daglegu lífi við úrlausn mála.

Lögð er áhersla á markmiðasetningu og veikleika- og styrkleikagreiningar.

Einnig mikilvægi samningsumboðs og innri og ytri aðstæður sem geta haft áhrif á samningsstöðu. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á undirbúning framsögu og umræðu á vinnustaða-og félagsfundum.

Einnig er fjallað um einkenni og tilgang ýmissa ræðuforma. 

Farið er í helstu atriði sem hafa þarf í huga til að fá áheyrn og að mál okkar komi skýrt og greinilega fram. 

Ábyrgðaraðili

Sigurlaug Gröndal