Upplýsingar

  • Dagsetning: 28/11/2024 – 28/11/2024
  • Tími: 09:00 – 11:00
  • Staður: Kennsla fer fram á vefnum í gegnum Zoom
  • Verð: 8900 ISK

Lýsing

Farið er í grunnþætti Vinnutímatilskipunar EES – hvíldartímaákvæðið sem hefur verið bundið í kjarasamninga frá 1996/1997 og síðar í kafla IX í lögum nr. 46 um Aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum frá 1980.

Sérstök áhersla er lögð á samspil vinnutíma og hvíldartíma þegar skipulag vinnu er mismunandi á sólarhring og milli vikna, sbr. vaktavinna.

Hvers þarf að gæta við skipulag vakta svo hvíldartími sé virtur. 

Einnig ef hvíld er frestað – hvernig frítökuréttur ávinnst, hvernig töku frítökuréttar skuli hagað og uppgjöri við starfslok. 

Nemendur fá sendan hlekk inn á Zoom í tölvupósti deginum áður en námskeið hefst.

Ábyrgðaraðili

Sigurlaug Gröndal