Upplýsingar
- Dagsetning: 25/11/2026 – 25/11/2026
- Tími: 09:00 – 14:00
- Staður: Námskeiðið fer fram í streymi á vefnum í gegnum Zoom
- Verð: 10785 ISK
Lýsing
Megináhersla er lögð á tilurð og uppbyggingu almannatryggingakerfisins og lífeyrissjóðakerfisins. Farið er í hugmyndafræði íslenska lífeyrissjóðakerfisins, styrk þess og hvernig það byggir á samkomulagi verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda. Fjallað er um skylduaðild, tryggingavernd og samspil lífeyrissjóðanna og almannatryggingakerfisins. Einnig er skoðuð réttindaávinnsla og taka lífeyris.