Almenn námskeið
Ný námskeið koma inn reglulega – fylgstu með!
Samskipti á vinnustað-Fjarnám
Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarnámi á vefnum.
Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað. Hvernig megi stuðla að góðum samskiptum og skoðaðir eru algengustu þættir sem valda samskiptaerfiðleikum á vinnustað.
Kennsla fer fram í gegnum zoom í fjarnámi. Skráningu lýkur 31. mars kl. 12:00.
Veikinda-og slysaréttur – vefnám
Námskeiðið er rafrænt og hægt að taka hvenær sem hentar.
Á námskeiðinu er farið í rétt launafólks til launa í veikinda- og slysatilfellum samkvæmt lögum og gildandi kjarasamningum. Einnig er farið í ávinnslu og töku og ýmis ákvæði er varða annars vegar veikindarétt og hins vegar slysarétt.
Námskeiðið er opið fyrir trúnaðarmenn allra stéttarfélaga og aðra áhugasama og er opið nemendum frá 15.apríl kl. 09:00 til 30. apríl kl. 16:00.
Skráningu lýkur 14. apríl kl. 12:00
Sjálfsefling-Fjarnám
Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarnámi á vefnum.
Á námskeiðinu er farið í helstu þætti í umhverfi okkar sem hefur áhrif á sjálfstraust okkar og hvernig það hefur áhrif á samskipti á milli fólks. Einnig er skoðað hvernig við getum eflt sjálfstraust okkar í daglegu lífi.
Kennsla fer fram í gegnum zoom í fjarnámi. Skráningu lýkur 22. apríl kl. 12:00.
Almanntryggingar og lífeyrissjóðir – fjarnám
Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá trúnaðarmannanámsins.
Á námskeiðinu er farið í uppbyggingu og tilurð almanntryggingakerfisins. Einnig er farið yfir hugmyndafræði og styrk íslenska lífeyrissjóðakerfisins. Fjallað er um skylduaðild, tryggingavernd og samspil lífeyrissjóðanna og almannatryggingakerfisins.
Skráningu lýkur 5. maí kl. 12:00