Upplýsingar
- Dagsetning: 26/02/2026 – 27/02/2026
- Tími: 09:00 – 14:00
- Staður: Fundarsalur Hlífar að Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði
- Verð:
Lýsing
Megináhersla er lögð á helstu hagfræðihugtök í daglegu lífi og í kjarasamningagerð, s.s. kaupmátt launa, mun á hlutfallslegri hækkun eða krónutöluhækkun. Einnig áhrif verðbólgu á kaupmátt og verðlagshækkanir.
Megináhersla er lögð á lög um vinnurétt og hvernig þau styðja kjarasamninga og hvernig íslenskur vinnumarkaður er upp byggður. Lögð er áhersla á rétt launamanna t.d. til fæðingarorlofs, atvinnuleysistrygginga og ýmis þau réttindi í lögum og reglugerðum sem íslenskur vinnumarkaður byggir á.