Upplýsingar
- Dagsetning: 01/11/2026 – 30/11/2026
- Tími: 09:00 – 16:00
- Staður: Námskeiðið fer fram rafrænt í Learncove – námsvef skólans
- Verð: 10785 ISK
Lýsing
Nemendur læra reiknitölur helstu launaliða, yfirvinnu, stórhátíðarkaups og vaktaálags.
Nemendur kynnast grunnuppbyggingu launaseðla og launaútreikninga.
Einnig er farið í útreikninga á staðgreiðslu skatta og þeirra iðgjalda í lífeyrissjóði og aðra sjóði sem skylt er að reikna og draga frá launum.
Einnig er lögð áhersla á mikilvægi varðveislu launaseðla.
Námskeiðið byggir á þremur fyrirlestrum. Eftir hvern fyrirlestur þarf nemandi að leysa verkefni tengdu efninu.
Námskeiðið tekur um þrjár klukkustundir.
Hægt er að taka námskeiðið í áföngum meðan á því stendur.