Upplýsingar
- Dagsetning: 01/10/2026 – 31/10/2026
- Tími: 09:00 – 16:00
- Staður: Kennsla fer fram rafrænt á námsvef skólans – Learncove
- Verð: 10785 ISK
Lýsing
Farið er í hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera? Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum.
Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga
um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð.
Kynntir eru þeir gagnabankar sem trúnaðarmaður hefur aðgang að og
getur leitað upplýsinga.
Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti
umkvörtunum og vinna úr þeim og gæta fyllsta trúnaðar í sínum störfum.
Námskeiðið byggir á remur fyrirlestrum og eftir hvern fyrirlestur þarf nemandi að leysa verkefni tengdu efninu.
Námskeiðið er metið sem 4 kennslustundir eða um 3 klukkustundir.
Þeir trúnaðarmenn sem hyggjast sækja námskeiðið þurfa leyfi stéttarfélagsins til að sækja námskeiðið.
Aðrir geta sótt um styrk hjá sínu stéttarfélagi