Upplýsingar

  • Dagsetning: 01/11/2024 – 30/11/2024
  • Tími: 09:00 – 16:00
  • Staður: Vefnám – rafrænt á vefnum
  • Verð: 5500 ISK

Lýsing

Námskeiðinu er ætlað að varpa ljósi á þær skyldur sem bæði starfsmenn og atvinnurekendur hafa samkvæmt gildandi kjarasamningum þegar um uppsögn er að ræða.

Farið er í form uppsagnar, mikilvægi formlegs uppsagnarbréfs og afendingar þess.

Einnig er farið í lengd uppsagnarfrests eftir mismunandi kjarasamningum.

Skoðaðar eru uppsagnir í tengslum við orlof, veikindi og slys sem og þeirra sem njóta uppsangaverndar.

Gert er ráð fyrir því að nemendur séu greiðendur að námskeiðinu, en trúnaðarmenn þurfa að fá leyfi stéttarfélags til að skrá sig á námskeiðið eigi félagið að vera greiðandi, annars að geta þeir sótt um endurgreiðslu hjá sínu stéttarfélagi vegna setu á námskeiðinu. 

Námskeiðið er rafrænt og fer fram þannig að nemendur horfa á upptöku af fyrirlestri og að honum loknum þurfa nemendur að leysa verkefni í formi spurninga úr efni fyrirlestrarins.

Fyrirlestur og námsefni við skráningu fer inn á innri vef nemenda. 

Nemendur hafa tímann til kl. 16:00 þann 30. nóvember 2024 til að ljúka námskeiðinu.

Ábyrgðaraðili

Sigurlaug Gröndal