Upplýsingar
- Dagsetning: 16/09/2026 – 17/09/2026
- Tími: 09:00 – 14:00
- Staður: Fundarsal félagsins að Þjóðbraut 1, Akranesi
- Verð:
Lýsing
Nemendur læra reiknitölur helstu launaliða. Nemendur kynnast grunnuppbyggingu launaseðla og launaútreikninga. Einnig er farið í útreikninga á staðgreiðslu skatta og þeirra iðgjalda í lífeyrissjóði og aðra sjóði sem skylt er að reikna og draga frá launum. Einnig er lögð áhersla á mikilvægi varðveislu launaseðla.
Farið verður í helstu atriði gildandi kjarasamninga og túlkun á þeim. Einnig hvað trúnaðarmenn þurfa að hafa í huga
við túlkun kjarasamninga.