Vef- og fjarnámskeið

Ný námskeið koma inn reglulega – fylgstu með!

Trúnaðarmannsstarfið í hnotskurn

Námskeiðið er ætlað nýkjörnum trúnaðarmönnum eða þeim sem áhuga hafa á því að starfa sem trúnaðarmenn.

Farið er í stuttu máli um hlutverk trúnaðarmanna og störf þeirra.

Námskeiðið fer fram í fjarnámi í gegnum Zoom.

Næst: 23/01/2025

Vaktavinna á opinberum vinnumarkaði

Námskeiðið fjallar um vinnutíma og fyrirkomulag vaktavinnu á opinberum markaði. Námskeiðið er ætlað trúnaðarmönnum og þeim starfsmönnum innan aðildarfélaga innan BSRB og ASÍ sem starfa í vaktavinnu hjá ríki, sveitarfélögum og stofnunum sem eru aðilar að Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Skráningu lýkur 22. janúar kl. 12:00.

Leiðbeinandi er Dagný Aradóttir Pind, lögmaður hjá BSRB.

Næst: 23/01/2025

Trúnaðarmaðurinn starf hans og staða – 13:00-16:00

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarnámi á vefnum.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á starfs trúnaðarmannsins samkvæmt gildandi lögum og kjarasamningum. Hvert sé hlutverk hans og starfssvið.

Farið er í heimild til kosninga og hvernig hún fer fram.

Kennsla fer fram í gegnum zoom í fjarnámi. Skráningu lýkur 22. janúar kl. 12.00.

Næst: 28/01/2025

Trúnaðarmaðurinn, starf hans og staða – vefnám

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá.

Farið er í starfsvið trúnaðarmannsins samkvæmt lögum og kjarasamningum, réttindi hans og skyldur.

Námskeiðið er opið fyrir alla trúnaðarmenn stéttarfélaga. 

Námskeiðið er rafrænt og hægt að taka hvenær sem er á tímabilinu 1.-28. febrúar 2025.

Skráningu lýkur 31. janúar kl. 16:00. 

Næst: 01/02/2025

Þjóðfélagið og vinnumarkaðurinn – 13:00-16:00

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarnámi á vefnum.

Á námskeiðinu er meðal annars farið í uppbyggingu vinnumarkaðarins, uppbyggingu stéttarfélaga og starfsemi þeirra ásamt hlutverki heildarsamtaka launafólks og uppbyggingu þeirra. Skoðað er lýðræði frá mismunandi sjónarhornum.

Kennsla fer fram í gegnum zoom í fjarnámi. Skráningu lýkur 3. febrúar kl. 12:00.

Næst: 04/02/2025

Samskipti á vinnustað – 09:00-12:00

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarnámi á vefnum.

Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað. Hvernig megi stuðla að góðum samskiptum og skoðaðir eru algengustu þættir sem valda samskiptaörðugleikum á vinnustað.

Kennsla fer fram í gegnum zoom í fjarnámi. Skráningu lýkur 11. febrúar kl. 12:00.

Næst: 11/02/2025

Rola męża zaufania w pigułce

Kurs jest przeznaczony dla nowo wybranych mężów zaufania lub osób zainteresowanych pełnieniem tej funkcji.

Podczas kursu w skrócie omawiane są rola i obowiązki męża zaufania.

Kurs odbywa się w formie zdalnej za pośrednictwem platformy Zoom.

Næst: 12/02/2025

Lestur launaseðla og launaútreikningar-09:00-12:00

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá trúnaðarmannanámsins.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á uppbyggingu launaseðla og launaútreikninga samkvæmt gildandi kjarasamningum og reglum skattsins.

Nemendur læra reiknitölur helstu launaliða og iðgjalda. 

Skráningu lýkur 17. febrúar kl. 12:00

Næst: 18/02/2025

Samskipti á vinnustað – 13:00-16:00

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarnámi á vefnum.

Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað. Hvernig megi stuðla að góðum samskiptum og skoðaðir eru algengustu þættir sem valda samskiptaörðugleikum á vinnustað.

Kennsla fer fram í gegnum zoom í fjarnámi. Skráningu lýkur 24. febrúar kl. 12:00.

Næst: 25/02/2025

Lestur launaseðla og launaútreikningar – vefnám

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í rafrænni útgáfu á námsvefnum.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á uppbyggingu launaseðla, útreikningu launaliða og helstu deilitölur í launaútreikningum samkvæmt gildandi kjarasamningum og reglum skattsins. 

Kennsla fer fram rafrænt á námsvef Learncove á vef Félagsmálaskólans og er hægt að taka hvenær sem er. 

Námskeiðið er opið frá 1. mars kl. 09:00 til 31. mars kl. 16:00. 

Skráningu lýkur 28. febrúar kl. 12:00.

Næst: 01/03/2025

Uppsagnir og uppsagnarfrestur – vefnám

Námskeiðið er vefnám sem hægt er að taka hvenær sem hentar.

Á námskeiðinu er farið í form uppsagna. Hvenær má segja upp og hvenær ekki.

Ritun uppsagnarbréfs og afhending ásamt lengd uppsagnarfrest samkvæmt kjarasamningum.

Skráningu lýkur 28. febrúar kl. 12:00.

Næst: 01/03/2025

Lestur launaseðla og launaútreikningar-13:00-16:00

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá trúnaðarmannanámsins.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á uppbyggingu launaseðla og launaútreikninga samkvæmt gildandi kjarasamningum og reglum skattsins.

Nemendur læra reiknitölur helstu launaliða og iðgjalda. 

Skráningu lýkur 3. mars kl. 12:00

Næst: 04/03/2025

Vinnustaðafundir – vefnám

Námskeiðið er ætlað trúnaðarmönnum stéttarfélaga og er til fræðslu um skipulag og framkvæmd vinnustaðafunda.

Námskeiðið er gjaldfrítt.

Námskeiðið er opið nemendum 15. mars.-14. apríl 2025.

Hægt er að skrá sig til 14. mars kl. 12:00.

Næst: 15/03/2025

Samningatækni

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá trúnaðarmannanámsins.

Lögð er áhersla á eðli og markmið samninga. 

Fjallað er um hvernig við getum metið stöðu okkar til að ná samkomulagi á vinnustað við stjórnendur og hvernig við bregðumst við deilum og vinnum okkur niður á samkomulag. 

Skráningu lýkur 17. mars kl. 12:00

Næst: 18/03/2025

Vinnuréttur – Almennt

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarkennslu á vefnum. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á lög um vinnurétt og hvernig þau styðja kjarasamninga og hvernig íslenskur vinnumarkaður er uppbyggður. 

Farið er í réttindi launafólks á íslenskum vinnumarkaði. 

Skráningu lýkur 24. mars kl. 12:00

Næst: 25/03/2025

Veikinda- og slysaréttur – vefnám

Námskeiðið er rafrænt og hægt að taka hvenær sem hentar.

Á námskeiðinu er farið í rétt launafólks til launa í veikinda- og slysatilfellum samkvæmt lögum og gildandi kjarasamningum. Einnig er farið í vinnslu og töku og ýmis ákvæði er varða annars vegar veikindarétt og hins vegar slysarétt.

Námskeiðið er opið fyrir trúnaðarmenn allra stéttarfélaga og aðra áhugasama og er opið nemendum frá 1. febrúar til kl. 16:00 29. febrúar 2024.

Skráningu lýkur 31. mars kl. 12:00

Næst: 01/04/2025

Vinnuréttur

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarkennslu á vefnum. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á vinnurétt starfsmanna sem vinna hjá hinu opinbera og hvernig þau styðja kjarasamninga. Einnig er farið í hvernig íslenskur vinnumarkaður er uppbyggður. 

Farið er í réttindi launafólks á íslenskum vinnumarkaði. 

Skráningu lýkur 31. mars kl. 12:00.

Leiðbeinandi: Hrannar Már Gunnarsson, lögfræðingur hjá BSRB

Næst: 01/04/2025

Sjálfsefling – 09:00-12:00

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarnámi á vefnum.

Á námskeiðinu er farið í helstu þætti í umhverfi okkar sem hefur áhrif á sjálfstraust okkar og hvernig það hefur áhrif á samskipti á milli fólks. Einnig er skoðað hvernig við getum eflt sjálfstraust okkar og eflt í daglegu lífi.

Kennsla fer fram í gegnum zoom í fjarnámi. Skráningu lýkur 7. apríl kl. 12:00.

Næst: 08/04/2025

Að koma máli sínu á framfæri

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá trúnaðarmannanámsins.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á undirbúning framsögu og umræðu á vinnustaða- og félagsfundum.  Farið er í helstu atriði sem hafa þarf í huga til að fá áheyrn og að mál okkar komi skýrt og greinilega fram.

Skráningu lýkur 14. apríl kl. 12:00.

Næst: 15/04/2025

Almannatryggingar og lífeyrissjóðir

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá trúnaðarmannanámsins.

Á námskeiðinu er farið í uppbyggingu og tilurð almanntryggingakerfisins. Einnig er farið yfir hugmyndafræði og styrk íslenska lífeyrissjóðakerfisins. Fjallað er um skylduaðild, tryggingavernd og samspil lífeyrissjóðanna og almannatryggingakerfisins.

Skráningu lýkur 21. apríl kl. 12:00

Næst: 22/04/2025

Sjálfsefling – 13:00-16:00

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá í styttri útgáfu í fjarnámi á vefnum.

Á námskeiðinu er farið í helstu þætti í umhverfi okkar sem hefur áhrif á sjálfstraust okkar og hvernig það hefur áhrif á samskipti á milli fólks. Einnig er skoðað hvernig við getum eflt sjálfstraust okkar og eflt í daglegu lífi.

Kennsla fer fram í gegnum zoom í fjarnámi. Skráningu lýkur 28. apríl kl. 12:00.

Næst: 29/04/2025

Uppsagnir og uppsagnarfrestur – vefnám

Námskeiðið er vefnám sem hægt er að taka hvenær sem hentar.

Á námskeiðinu er farið í form uppsagna. Hvenær má segja upp og hvenær ekki.

Ritun uppsagnarbréfs og afhending ásamt lengd uppsagnarfrest samkvæmt kjarasamningum.

Skráningu lýkur 30. apríl kl. 12:00.

Næst: 01/05/2025

Túlkun talna og hagfræði

Námskeiðið er hluti af gildandi námsskrá trúnaðarmannanámsins.

Farið er í helstu viðfangsefni hagfræðinnar og kynnt ýmis hagfræðileg hugtök.

Fjallað er um samband launa og verðlags – verðbólgu og áhrif hennar á kaupmátt.

Einnig er fjallað um hvernig hagfræðin kemur að gerð kjarasamninga.

Skráningu lýkur 5. maí kl. 12:00

Næst: 06/05/2025

Vinnueftirlit – vinnuvernd

Upplýsingar Dagsetning: 13/05/2025 – 13/05/2025 Tími: 09:00 – 12:00 Staður: Kennsla fer fram í fjarnámi á vefnum í gegnum Zoom Verð: 8900 ISK Lýsing Skráning Ábyrgðaraðili Sigurlaug Gröndal
Næst: 13/05/2025