Ársskýrsla Fræðslumiðstöðvarinnar

by | 10. maí, 2022 | Almennar fréttir

Í nýútkominni ársskýrslu Fræðslumiðstövar atvinnulífsins er farið yfir starfið og helstu verkefni. Þar kemur fram að allsi hafi 580 einstaklingar farið í gegnum raunfærnimat á vegum framhaldssfræðslunnar á síðasta ári, tæplega 2400 lokið námi og 8600 ráðgjafaviðtöl farið fram.

Frá upphafi hefur FA unnið að þróun raunfærnimats og uppbygginu náms í samstarfi við atvinnulífið og fræðsluaðila. Starfið er gríðarlega umfangsmikið og þau verkfæri sem þar er unnið með mikilvæg fyrir vinnumarkaðinn allan.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, hefur lagt áherslu á mikilvægi starfsins og segir  áhrif loftslagsbreytinga og fjórðu iðnbyltinguna stórar áskoranir  sem kalla muni á fleiri tækifæri til endurmenntunar og grunnmenntunar.

Skýrsluna má lesa í heild hér:

Ársskýrsla Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 2021