NÁMSKRÁ
Lestur launaseðla – launaútreikningar
Námslýsing:
Megináhersla er á skilning námsmanna á uppbyggingu launaseðla og skyldur atvinnurekenda um upplýsingar jafnhliða launagreiðslum. Þjálfun í útreikningum á dagvinnu, yfirvinnu, stórhátíðarkaupi og vinnutíma eru mikilvægir þættir í náminu. Farið er yfir hvaða reglur gilda samkvæmt vinnulöggjöfinni, s.s. hvað atvinnurekanda ber að draga frá launum starfsmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum og hvaða frádráttur er ekki heimill. Þá verður einnig farið yfir mikilvægi varðveislu launaseðla og gildi þeirra sem kvittunar ef erfiðleikar koma upp í rekstri fyrirtækja. Einnig þurfa nemendur að þekkja tímarammann sem starfsmenn hafa til að gera athugasemdir við launa- og vinnutímaútreikninga.
Helstu efnisþættir:
Mánaðarlaun fyrir dagvinnu, dagvinnulaun, yfirvinnugreiðslur, orlofsprósenta eftir fjölda orlofsdaga, lífeyrissjóðsiðgjöld, staðgreiðsla, persónuafsláttur, skattþrep.
Markmið og hæfniviðmið:
Að nemendur:
- Kynnist helstu hugtökum sem tengjast launaútreikningum, launaliðum, frádráttarliðum.
- Geri sér grein fyrir áhrifum tómlætis launamanna við yfirferð launaseðla og nauðsyn þess að yfirfara þá.
- Verði meðvitaðir um hvernig launaliðir eru reiknaðir, launamyndun og skattur er reiknaður.
- Þekki til launaútreikninga og frádráttarliða og hvað ber að gera þegar laun eru ekki rétt, skyldu launagreiðanda að gera skil á skatti og launatengdum gjöldum.