NÁMSKRÁ
Túlkun kjarasamninga – hagfræði
Námslýsing:
Í námskeiðinu verður farið yfir mikilvæg hugtök og viðfangsefni hagfræðinnar t.d. hagvöxt, landsframleiðslu, gengi, hagstjórn og verðbólgu. Jafnframt er lögð áhersla á að þátttakendur skilji samhengi þessara hugtaka við störf trúnaðarmannsins, kjarasamninga og launamyndun. Kafað verður í samspil lífskjara og vinnumarkaðarins við samkeppnishæfni og hagvaxtakenningar.
Farið verður yfir hvernig launamyndun á Norðurlöndunum er háttað út frá hagfræðilegu sjónarhorni og hver markmið kjarasamninga eru í nágrannalöndum.
Helstu efnisþættir:
Lífskjör, hagvöxtur, samkeppnishæfni og samspil þessara þátta við kjarasamninga og launamyndun.
Markmið og hæfniviðmið:
Að nemendur:
- Þekki grunnhugtök hagfræðinnar og hafi þekkingu og skilning á samhengi þeirra við störf stéttarfélaga og trúnaðarmanna.
- Skilji þá þætti sem hafa áhrif á lykilstærðir í efnahagslífinu sbr. hagvöxt, vinnumarkað, verðlag og gengi.
- Geti hagnýtt sér þekkingu á undirstöðum hagfræðinnar við túlkun og skilning á kjarasamningum, hagstjórnaraðgerðum,