EINELTI Á VINNUSTAÐ
Áhættuþættir eineltis
Sjaldan er ein ástæða fyrir því að einelti á sér stað heldur tvinnast mismunandi þættir saman. Það er einkum þrennt sem veldur því að einelti fær að þrífast á vinnustöðum.
- Aðstæður innan fyrirtækis
- Stjórnunarstíll
- Samskiptahefð á vinnustað
Aðstæður fyrirtækis
Athugaðu upptalninguna hér að neðan og hvort eitthvað á við vinnustaðinn þinn.
- Slæm samkeppnisstaða.
- Hagræðingaraðgerðir – yfirvofandi uppsagnir og tilfærslur í starfi.
- Samdráttur.
- Þrýstingur á verklok og árangur.
- Skortur á skipulagningu vinnunnar eða slæmt vinnuskipulag.
- Illa útfærðar starfslýsingar.
- Slæm vinnuskilyrði.
- Lítil valddreifing – stjórnandi skiptir sér af smáatriðum.
Þessar aðstæður eru góður jarðvegur fyrir einelti.
Stjórnunarstíll
Veltu fyrir þér hvernig starfsfólki er stjórnað af yfirmönnum á vinnustaðnum þínum.
- Starfsfólk látið afskiptalaust.
- Starfsfólk býr við ofríki.
- Of miklar kröfur gerðar til starfsfólks.
- Samkeppni meðal starfsmanna.
- Viðurkenningar og umsagnir ekki veittar.
- Verkefni og ábyrgð ekki skilgreind.
- Lélegt upplýsingaflæði.
Einelti þrífst vel við svona stjórnun.
Samskiptahefð á vinnustað
Hugleiddu framkomu og samskipti starfsmanna á vinnustaðnum þínum.
- Ekki tekið á vandamálum og ágreiningi.
- Baktal líðst.
- Samskiptavenjur byggja ekki á skilningi og trausti.
- Starfsfólk látið vinna saman sem augljóslega getur það ekki.
- Óskrifaðar reglur miðast einungis við fámennan hóp.
Á vinnustað þar sem samskipti eru slæm eru meiri líkur á að fólk sé lagt í einelti en annars.
Áhrif eineltis á fyrirtæki
Er einelti á vinnustaðnum þínum? Farðu yfir eftirfarandi lýsingar og veltu fyrir þér hvort þær eiga við um vinnustaðinn þinn.
Starfsmönnum líður illa á vinnustað þar sem einelti fær að þrífast sem hefur auðvitað áhrif á að:
- Afköst minnka.
- Mistök verða fleiri.
- Upplýsingaflæðið versnar.
- Samskipti starfsmanna eru stirð.
- Þjónustuvilji minnkar.
- Kvörtunum fjölgar mjög líklega.
- Starfsmannaskipti eru tíðari.
- Kostnaður við að þjálfa nýtt starfsfólk eykst.
- Einbeiting starfsmanna er minni.
- Áhugi og metnaður starfsmanna í vinnunni minnkar.
- Fjarvistum fjölgar.
- Einungis er unnið eftir fyrirmælum og lítið frumkvæði.
- Tími stjórnenda fer í að taka á afleiðingunum og þeir geta ekki einbeitt sér að öðru á meðan.
Eins og sjá má hefur einelti áhrif á velgengni fyrirtækja.
Stjórnendur bera ábyrgð á afkomunni og þess vegna ber þeim að taka á einelti og sjá til þess að það líðist ekki.